Menntun: Meistarapróf í reikningshaldi og endurskoðun 2007. Viðskiptafræðingur frá H.Í. 1986.

Starfar sem skrifstofustjóri hjá Svalbarðsstrandarhreppi auk þess að sinna stundarkennslu í Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri.

Fyrri störf: Síðustu 30 árin hefur Harpa starfað hjá Félagi íslenskra iðnrekenda, hjá IMPACT (verkefni á vegum Evrópusambandsins í upplýsingaiðnaði), við bókhald, uppgjör og framtalsgerð, þar af hjá Þrep endurskoðun ehf. 2001-2007, hjá PricewaterhouseCoopers 2008-2011 við endurskoðun, uppgjör og framtalsgerð og sem ráðgjafi hjá Umboðsmanni skuldara á Akureyri. Harpa hóf störf hjá Svalbarðsstrandarhreppi 2014.